Já, það er komið haust og ég er byrjaður í Iðnskólanum í Rvk. að læra tækniteiknun. Það gengur svona helvíti vel, er með 9ur og 10ur í öllum prófum........nema stærðfræði. Hún er alveg jafn mikill óvinur minn eins og fyrir 100 árum þegar ég var síðast í skóla!!!! En ég held að ég nái stærðfræðinni alveg, get ekki verið þekktur fyrir að ná ekki stærðfræði 102
Það gengur svo vel í Autocad og grunnteikningu að ég var beðinn að taka að mér kennslu í næstu viku fyrir einn kennarann sem þarf að vera í fríi þá. Ég afþakkaði það strax, ég er ekkert "kennaraefni" ef hægt er að orða það þannig. Kannski seinna. Já svo er ég líka að vinna með skólanum, teikna, þegar ég hef tíma og nennu; náði rúmlega 120 tímum í síðasta mánuði+ 150 tímar í skólanum. Very nice("mjög svo gott" eins og "Meistarinn" segir).
Ég á gamla Mözdu 323 sem ég gæti líklega selt fyrir 100þ. Ég missti mig aðeins um daginn og keypti varahluti í hana fyrir nálægt þeirri upphæð, og er svo að dytta að henni. Hún er bara búin að vera svo góð við mig að ég get eiginlega ekki látið hana frá mér?!?!?!?
Allavega þá er dáldið mikið að gera hjá mér og minni Helgu þessa dagana. Við höfum varla tíma til að vaska upp heima, + það að maður er oftast svo þreyttur á kvöldin eftir skólann(það er alveg erfitt að vera í skóla þó það sé erfitt að ímynda sér það
.
OG JÓLAAUGLÝSINGARNAR ERU BYRJAÐAR
Þar til síðar,
kv. Gunni S.S.
(stolinn brandari)
Hvað fær maður ef maður kastar viagrapillu uppí loftið??? Stífa norðanátt,,,,,,,,